Áhugamálið hefur verið svolítið snautt af greinum en ef enginn sendir inn greinar, þá ekki kvarta yfir því að það séu ekki greinar. Það er endalaust hægt að tala um klassíska tónlist og það tekur hálftíma að pára eina litla grein um sitt uppáhalds tónskáld eða lag með hjálp www.wikipedia.org .

Byggt af grein frá wikipedia.org :

http://en.wikipedia.org/wiki/Claude_Debussy

Claude Debussy fæddist 22. ágúst 1862. Hann byrjaði að læra klassíska tónlist þegar hann var 9 ára og vöktu hæfileikar hans mikla athygli og fékk Debussy inngöngu í Paris Conservatoire aðeins 11 ára gamall og þegar hann var 22 ára hélt hann til Rómar til frekari náms og var þar í tvö ár. Hann var undir miklum áhrifum frá tónskáldum eins og Wagener og aðra sem voru að “seinnihluta rómantískustefnunnar” og einkennist tónverk Debussy af rómantískum og jafnframt dramatískum blæ

Upp úr 1890 gaf hann út lagasafnið “The Suite Bergmansque” sem inniheldur meðal annars lagið “Clair de Lune”. Þetta eina lag hefði verið nóg til að koma honum á spjöld mannkynssögunnar en hér er á ferð meistaraverk sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Verkið byrjar einfalt, eins og að sólin sé að setjast og máninn að koma upp, skínandi í allri sinni dýrð. Það er eins og tunglið sé að berjast við skýin um að sjást, um að komast fram og lýsa á jörðina og svo í lokin kemur mjög svipaður kafli og í byrjun, sólin er að koma upp og tunglið að hverfa af sviðsljósinu og deyja. Clair de lune þýðir “Skýrt tunglskin” eða “hreint tungl”.

Debussy samdi “Children’s Corner Suite” árið 1909 sem hann tileinkaði dóttur sinni og inniheldur það rómantísk og dramatísk verk auk nokkurra skemmtilegra verka sem er bæði gaman að spila og hlusta á eins og “Golliwogg’s Cake-Walk”, sem margir píanóleikarar hafa spreytt sig á að spila. Verkið er hratt og fjörugt og minnir á lag sem leikið hefur verið í fjölleikahúsi.

Á árunum 1913-1915 gaf hann út ymis verk, balletta, sónatínur, Etíður og verk fyrir hljómsveit. Öll verk hans einkenndust af miklu drama og rómantík eða þá voru þau í léttari kanntinum, fjörug og hröð. Debussy skipti skyndilega um stíl og síðustu sónatínurnr sem hann samdi voru líkari fyrri verkum sínum, tærari, einfaldari.

Claude Debussy lést 25. mars 1918 af völdum krabbameins. Það var mikið uppþot í Frakklandi á þessum tíma og var ekki mögulegt að minnast hans með hefðbundinni útför.

Claude Debussy er enn þekktur fyrir að hafa verið innblástur í mörg tónskáld 20. aldarinnar. Lög hans áttu engin sín lík á þessum tíma og 20. aldar tónlist átti eftir að taka meira mið af því hvernig lög hann samdi. Það sem einkennir tónlist Debussy fram yfir hefðbundna evrópska tónlist á þessum tíma var meðal annars það hvernig hann notaðist við pedalinn á píanóinu, mun dreifðari og frjálsari og gefur það verkum hans sérstakann blæ og hvernig brotnir hljómar úr mismunandi tóntegundum var blandað saman og mynduðu exótíska hljóma sem pössuðu saman þrátt fyrir andstæður sínar.

Allir píanóleikarar kynnast verkum hans fyrr eða síðar en auðvitað hafa verk hans verið útsett fyrir nánast öll möguleg hljóðfæri, auk þess sem hann samdi balletta, sinfóníur og óperur . Frægasta verk hans er án efa er Clair de Lune sem hefur meðal annars prýtt kvikmyndir eins og Ocean’s Eleven og Dog Soldiers. Ég mæli hiklaust með því að leita af þessu verki og hlusta á það en ég ætla ekki að fara nánar út í hvernig sé mögulega best að nálgst verkið :P