Jæja, nú er loksins komið að því kæru klassíkerar…

Hitt húsið býður unnendum sígildrar tónlistar upp á klassíska útvarpsstöð, Útvarp Mandólín 98,3 allan júlímánuð.Stöðin mun spila klassíska tónlist í bland við vandaða og fræðandi umfjöllun um allt milli himins og jarðar tengt henni.

Endilega takið þátt í þessu sumarævintýri og stillið á 98,3 í júlí til að hlýða á fagra hljóma úr hinum ýmsu hljóðfærum!

Áhugasamir geta kíkt á www.mandolin.is eða sent okkur rafpóst á mandolin@mandolin.is. Heimasíðan kemur reyndar ekki upp fyrr en eftir helgi en þar verður hægt að sjá helstu dagskráliði pistla um klassík og margt, margt fleira.

Góðar stundir í júlí og endilega komið með athugasemdir og spurningar því að við erum opnar fyrir öllu!!
www.mandolin.is, the place to be these days…