Free Willy Þetta er Free Willy, kisinn minn. Hann er fæddur 21. maí 2004 ef mig minnir rétt. Hann er sonur hinnar kisunnar minnar, Sprettu. Í báðum gotum kisunnar minnar kom alltaf einn svona skógarkattarlegur kettlingur. Hann er úr seinna gotinu og rosalega sætur. Hann lætur alveg eins og kettlingur og var algjörlega bjargvætturinn minn þegar ég lá heima í tvær vikur eftir hálskirtlatöku.
Hann lá hjá mér allan tíman.
Þó hann sé voðalega ljúfur og latur er hann alltaf að lenda í slagsmálum.
Það vantar bita í eyrað á honum og eins og þið sjáið er hann með ör á nefinu.
Elska þennan kisa <3