Púma litla Þetta er hún Púma litla læðan sem ég var að fá fyrir viku, hún varð fyrir smá óhappi á mánudaginn þegar hún var að leika við stjúpson minn sem er á 5 ári, hún datt af skrifborðinu í gestaherberginu og fékk þennan ljóta skurð fyrir neðan nebbann sinn greyið.

En sárið grær rosalega vel á henni og hún dugleg að borða, drekka og leika sér.

Púma er að verða 2 mánaða 12 maí, svo hún er bara lítið krútt.