Viltu leika? Þetta eru 4 ára læðan mín og 6 mánaða íslenski fjárhundurinn minn í sumar. Þau voru ekkert of miklir vinir þá eins og sést núna, enda átti kötturinn heimilið og var ekkert ánægð með nýja fjölskyldumeðliminn. Sérstaklega ekki þegar hann varð æstur og ætlaði að leika við hana :P

En núna eru þau voða góðir vinir, hún heilsar honum eins og okkur með því að nudda sér utan í hann, sem er með því sætasta sem ég hef séð :D En ég held að hún sé samt ekki farin að leika við hann ennþá :P