Ok, ég var að labba heim af göngutúr þegar ég heyrði mjálm á bakvið mig. Ég leit við og sá að það var köttur að elta mig, ég klappaði kisunni í nokkrar mínútur, en gekk svo áleiðis heim. En kisinn hætti ekki að elta mig. Ég opnaði dyrnar að húsinu mínu og kisi stökk inn! Kisinn vill ekki fara út og hann er sofandi í forstofunni. Hvað á ég að gera?