Hér eru litlir loðboltar sem vantar heimili, þeir eru fæddir 9.maí og eru því tilbúnir að fara eftir svona rúman mánuð. (9. júlí) Þeir eru byrjaðir að borða venjulegan kattamat fyrir kettlinga og farnir að skoða kassann sinn, svo þeir ættu að verða búnir að læra á hann. Þetta eru 2 högnar og 1 læða. Læðan er dekkst af þeim öllum, svo er annar högninn svartur með nokkrum gráum hárum, en hinn svartur með þó nokkuð mörg grá hár og svo eru þeir allir með rosalega falleg blá augu :)
Þeir eru algjörar rúsínur og farnir að skoppa um og skoða húsið og leika við hvorn annan.
Mamma þeirra er svört og heitir Ninja og er pabbinn líka svartur.
Endilega láttu vita ef þig langar í einn svona! ;)

Hér er síða með nokkrum myndum af krúttunum c:
http://web.me.com/antehf/Site_3/kisurnar.html