Hæhæ.

mig langaði að forvitnast hvort þið vitið um einhvern góðan og ódýran kattasand sem er næginlegt magn fyrir verð líka?

Ég er með þrjár kisur og þar að leiðandi tvo kassa og það er mjög dýrt að kaupa einn poka á þúsund krónur. Man ekki hvað gerðin heitir sem ég hef keypt en þetta er selt í bónus og er glær með bláum kúlum í, málið er það að það fer einn og hálfur poki í báða kassana og mér finnst það frekar dýrt þar sem er ekki mikið að peningarnir vaxi á trjánum hjá mér.

Mig langar líka að vita hvaða sand þið notið og verð og hvar hann er keyptur?

Langaði líka að athuga hvort þið hafið prufað að nota eitthvað annað en kattasand hja kisunum sem hefur þrælvirkað?
Death has always been around, breathing down my neck. - Niklas