Mig vantar kattafælu, catnip, bara whatever til að losna við ketti af lóðinni minni like NÚNA bara sem fyrst takk, allar hugmyndir mjög vel þegnar og endilega ef þið vitið hvar er hægt að versla einhverjar kattafælur eins og hátíðnidót eða eitthvað.
Málið er það að það er sírena úti í garði hjá okkur sem að kettirnir sækja svo svakalega í. Þeir eru að drepa tréð, vinafólk okkar þurfti að rífa sína upp því hún var dáin eftir alla kettina í hverfinu. Þeir rífa í börkinn og éta hann, börkurinn er eitraður þannig að þeir fara í vímu og sækja þessvegna svona mikið í hana aftur og aftur.
Hverfið er fullt af einnhverjum helvítis dópista köttum sem eru að eyðileggja fallegasta tréð í garðinum!

Vinsamlegast ekki segja mér að skjóta kettina eins og svo margir hafa gert, ég er mikil kattamanneskja þótt ég eigi ekki einn, en langar til þess og ég hef það sko ekki í mér að skjóta neinn kött takk fyrir!

plís plís vantar hjálp!