Hæ allir. Litla kisan mín er týnd :( Hún er bara 5 mánaða og hefur aldrei áður farið út úr húsi, ómerkt og er ekki einu sinni með ól :(

Hún týndist hérna í Efstasundinu bara rétt áðan fyrir kannski rúmum klukkutíma. Ég er búin að labba alla götuna og nærliggjandi götur og finn hana ekki.

Ef þið búið í kringum Efstasund/Kleppsveg endilega fylgisti með og látið mig vita bara hérna ef þið hafið séð hana.

Hún er lítil, svört og hvít með svartan nebba. Hún heitir Leia og svarar stundum nafni en er samt frekar mannafælin.

Æjjjjjjjjjj mér líður ekki vel, langar að finna litlu kisuna mína :(

Hérna eru myndir:
http://i168.photobucket.com/albums/u172/Alexandra_Raven/P2150349.jpg
http://i168.photobucket.com/albums/u172/Alexandra_Raven/P2150342.jpg