Ég veit ekki hvort þið gætuð hjálpað mér eitthvað en kötturinn minn er alltaf með eitthvað fast í hálsinum. Hún reynir að hósta þessu upp og hóstar mörgum sinnum á dag. ´Mér finnst þetta mjög skrítið því hún hefur ekki gert þetta í gegnum árin og svo tók hún upp á þessu fyrir tveimur mánuðum eða svo og mér finnst þetta alltaf vera að aukast.

Hafið þið hugmynd um hvað þetta er og ef svo er hvað hægt væri að gera við þessu?