OOO veistu! ég bara VERÐ að monnta mig!

það vill svo til að mig hefur langað í kött seinustu 2 ár eða svo!

Og þarsem ég by hjá kærastanum þá hefur það verið doldið erfitt að semsagt fá leyfið fyrir kisanum.

En akkurat þann dag sem ég var að fara gefa upp vonina… s.s. í gær ..

Þá tjáir hann mér að ég meigi fá kött í afmælisgjöf! ég gat ekki hætt að brosa! get enn ekki hætt að brosa haha! :D

Svo við fórum, skoðuðum nokkrar auglýsingar og svona … og við fundum nú eina sem bjó á sandgerði sem var að auglýsa kött sem var á lit sem mig dreymdi um!

Svarta!



Svo við fórum að skoða og það voru fullt af kettlingum þarna ! alveg HELLINGUR en bara ein heillaði mig, róleg en samt lætur heyra í sér, kvenkyns kisa:)

hún er algert gull! og yndi !
7 vikna og kolsvört með græn augu!

bara vá!


En takk fyrir lesninguna!

við Nadía Nótt kveðjum í bili…
kv. Citrin! :)
~ Systematic, Sympathetic