Sælir hugarar, langaði bara að segja ykkur frá því og monta mig í leiðinni að ég er að fara að fá mér tvær kisur í viðbót :D.

Ég á fyrir ræktun sem heitir Ísloga ræktun og er með fjórar kisur inni á heimilinu og einn sem ég er að passa. Tveir munu bætast við hópin núna í dag!

Ég hlakka svo mikið til. Þessar kisur eru mjög sérstakar, hreinræktaðar og úr rosalega góðum persa ræktunum.

Ég hef alltaf verið rosalega heppin með ketti, bæði kostnað og persónuleika þeirra. Aldrei neitt vesen með neitt og allir glaðir.

Til að bæta þetta ennþá meira er læðan sem ég á kettlingafull og læðan sem ég fæ í dag er einnig kettlingafull. Þannig að ég er að fara að standa í brjáluðu uppeldi á næstu mánuðum. Gaman að segja frá því.

Maður ætti kannski bara að senda inn eina grein um þau öll :D.
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…