Ég og kallinn fórum í gærkvöldi út að labba með strákinn okkar, við búum í sveit og því var túnið eini góði staðurinn til að fara í labbitúr, við byrjuðum að labba af stað þá heyrðum við glingra í bjöllu, litum við og var þá ekki hún Perla þarna að tríla með okkur.

Jæja við héldum áfram og enn elti Perla, og um leið og við vorum komin upp á tún var hún eins og lítill hvolpur sem hafði aldrei fengið að fara út =) það var bara æðislegt að sjá hana, hún var alveg eins og hundur og hafði líka bara mjög gaman af þessu.

Kanski að hann Tímon(sonur perlu) verði eins og mamma sín í framtíðinni
=D