Hæhæ, ég er með smá vandamál.

Það búa tveir kettir á heimilinu og hafa þeir undanfarið verið að koma inn með mikið af músum. Það væri ekki svo hræðilegt nema af því að mýsnar eru alltaf hakkaðar í spað og þeim dreift um allt gólf… skemmtilegt…

Þeir eru báðir með bjöllur á ólunum, er hægt að gera eitthvað meira?