Við fengum okkur kisu fyrir tveimur mánuðum síðan og svo kom í ljós að prinsinn var með ofnæmi fyrir köttum. Þannig að við fundum annað gott heimili handa honum en erum núna með fullt af dóti sem hann átti, allt mjög nýlegt. Við viljum selja þetta allt saman í einum pakka.

Þetta er :
- Kattarsandskassi og pokar í hann
- Skítaskófla
- Matarskál (með tveimur hólfum … )
- Ól (hann náði að naga hana á einum stað, annars er þetta mjög falleg græn ól)
- Klórustaur
- Mýs (litlar mýs úr næloni sem hringlar aðeins í, kisa fannst mjög gaman að þeim)
- Stöng með mús á endanum (ég bjó þetta reyndar til … hann elti þetta út um allt) - frítt með
- Laser (mjög skemmtilegt að leika við kisa með laser … hann elti rauða depilinn út um allt)
- Smá afgangur af kattarsandi - frítt með
- Kattarsjampó, hefur aðeins verið notað einu sinni.

Pakkinn kostaði okkur upphaflega 11.783 kr

Viljum fá 9000 krónur fyrir allt saman en skoðum samt öll tilboð. Þetta er allt mjög nýlegt og sér ekki á þessu, enda bara tveggja mánaða gamalt. Við erum staðsett á gamla varnarliðssvæðinu á Reykjanesinu. Hægt er að ná í okkur í síma 8697588.