Mig langaði að deila svolitlu fyndnu af kisustelpunni minni, en hún er ofboðslegur klifurköttur alltaf.
Þegar við vorum búin að setja upp jólatréð okkar og skreyta það með skrauti og kúlum og öllu saman þá var hún alltaf að fara undir það og klifra upp í það og oft lá hún bara á öllum greinunum upp í tré og var að reyna að veiða kúlurnar.
Það fyndna við þetta er að þegar hún var í trénu þá sér maður hana ekkert en allt tréð skelfur og hristist og kúlurnar á ferð það er eins og tréð lifni við og fari að hrista sig:D Af því að maður sér hana ekkert hehe, mér fannst þetta alltaf æðislega fyndið:)