Jæja mér vantar smá ráð…

ég á yndislega læðu og búin að eiga hana í bráðum 2 ár.

Kærastinn minn ætlar að gefa mér kettling í jólagjöf :D… en ég hef smá áhyggjur af því að Birta (kisan mín sem ég á núna) ráðist á kettlingin eða hendi honum út eða einhvað… eða þá að það verði öfugt þegar kettlingurinn stækkar og verður að stórri kisu.. því birta mín er alger “kettlingur” innikisa og ekki vön að vera með öðrum kisum… og hún er líka já bara sona pussy hehe svoldið viðkvæm og hrædd greyið…

eru einhvað miklar líkur á að einhvað mjöög leiðinlegt gerist eða haldiði að þær venjist hvor annari?
Nenniru að horfá mig þegar ég tala við þig =C