Móðir er hreinræktuð somali afbrigði af aby og hann er vel heppnaður fresskettlingur.
Hann er með alla persónutöfra aby kisa og þetta tignarlega útlit. Hvert hár í feldinum er marglitað, ljóst í endann, mjög spes. Það eiginlega stirnir á hann. Hann er ekki eins snögghærður og venjulegur aby kisi enda mamma hans síðhærð, mjög rebbaleg kisa. Hann er í brúnum og svörtum lit sem verður smá rauðleitur á mallanum. Mjög glæsilegur, háfættur en nettur. Hann er kelinn, góður barnakisi og fjörugur. Hann er vanur öðrum köttum.