Jæja nú er sýningin um næstu helgi 10. og 11. mars í reiðhöll Gusts í Álalind Kópavogi og sýnendur flestir búnir eða eru að klára gardínusaumun og annað sem tilheyrir undirbúning fyrir sýningu. Skreytingarþema fyrir þessa sýningarhelgi er hafið.
Kattasýningarnar eru að vissu leiti keppni kattana við staðalinn á sinni tegund en þetta er líka kynning fyrir almenning á kattategundunum sem eru á Íslandi og fjölbreytni þeirra.
Því miður þá hafa þessar sýningar verið lítið auglýstar og því margir misst af þeim þannig að ég vildi bara vekja athygli á þeim og vonast til að sjá sem flesta um helgina.
Og já sýningarnar eru opnar almenningi 10 - 18 báða dagana.