Því miður þurfum við að finna nýtt heimili handa elsku kisunum okkar…

Snöggur er rauðbröndóttur með hvítann maga, bangsalegur, örmerktur og geldur fress sem varð eins árs í desember.
Hann er ljúfur og rólegur og leyfir manni að hnoðast með sig eins og maður vill. (Væri líklega góður nálægt börnum).
Hann elskar að láta leika við sig og ef maður kastar músinni hans sækir hann hana og vill leika meira.

Freyja er að verða eins árs læða.
Hún er dökkgrá með hvítann háls og loppur.
Soldið mikill prakkari enda ennþá kettlingur.
Hún er mjög kelin og elskar að kúra hjá manni og láta klóra sér.

Þau eru bæði útikettir en hafa verið inni án vandræða í mánuð.

Sandkassi og matardallur fylgir þeim. Saman eða í sitthvoru lagi.