Ég hef sjaldan heyrt köttinn minn hnerra… Sérstaklega þegar hann er ekki í ryki.
Í fyrradag þegar ég vaknaði lá ég í stutta stund í rúmminu áður en ég færi í skólann. Ég var nýbúin að opna augun þegar ég heyri einhvern hnerra… Mér bregður ekki smá.. Ég hugsa með mér hvort ég hafi tekið einhvern með mér heim um nóttina… Þegar ég sný mér við sé ég þennan hvíta kött með himinbláu augun horfa á mig eins og ég sé einhver vitleysingur sem hafi brugðið svona við einu hnerri…!
Súkkulaðihjartað <3