Ég er eiginlega búin að gefa upp alla von - hún er búin að vera týnd í meira en mánuð - en maður veit aldrei. Ég hafði strax samband við Kattholt þegar hún týndist en hef ekkert heyrt.

Málið er að hún er mjög taugaveiklaður innikisi. Ég sé hana ekki fyrir mér vera mjög mannblendna og láta bera á sér. Hún er bröndótt og hvít og var með hálsól þegar hún týndist. Heitir Lísa, 3 ára, geld og er eyrnamerkt.

Ef einhver verður var við ferðir hennar við Háteigsveg eða í hverfinu þar í kring má gjarnan láta mig vita.
——————