Það er af sem áður var að gæludýrunum okkar nægði teppisdrusla til að liggja á, þá var öldin önnur. Nú fá sumir hundar að liggja í sófa eða jafnvel rúmi með eigendum sínum og kettir þar sem þeim þykir best í það skiptið. Okkur finnst nú sjálfsagt að þeim líði sem allra best en á sama tíma erum við mjög meðvituð um heildarútlit híbýla okkar.

Hér finnur þú nokkrar gerðir af gæludýrabælum en við hönnun þeirra er bæði hugað að notagildi, útliti, einfaldleika og hagkvæmni. Aðeins er notast við gæðaefni sem halda sér vel og lengi og öll bælin má þvo í þvottavél. Gott úrval er af litum og þeir eru hreinir og smekklegir.

„Grjónapungar" eru frábærir bæði fyrir ketti, hunda og börn að liggja á; eftir að lagst er á þau eru þau stöðug og styðja vel við líkamann sem reynist t.d. gott fyrir hunda sem þjást af sjúkdómum í liðum.

Bælin eru seld á viðráðanlegu verði og eru saumuð af mikilli vandvirkni.

WWW.letidyr.com