http://dogbreedinfo.com/catringtailsing.htm
Hafið þið einhvern tímann séð svona kött? Í hverfinu mínu eru 3 svona kettir! Finnst það mjög merkilegt þar sem þetta er tegund sem ég hélt að væri bara á tilraunarstigi í Bandaríkjunum. Hélt alltaf að þetta væri fæðingargalli í elsta kettinum í hverfinu en hef nú farið að velta fyrir mér hvort að þetta sé kannski einhver tegund.. Þessi köttur er útigangsköttur, fyrrverandi heimilisköttur og mjög blíður og hefur verið að gera margar læður kettlingarfullar í hverfinu og svona skott eru komin út um allt :) Spurning um að taka hann að sér og fara að rækta? ;)