Það birtist allt í einu köttur heima hjá mér fyrir svona 2 vikum. Hann er eiginlega alveg svartur, nema það að hann er með smá hvítt á hökunni og með hvítar fætur (svona eins og sokkar). Við erum með kattar matardall úti af því að við eigum 3 ketti sjálf, en einn þeirra vill bara vera úti, og þessi köttur sem birtist hérna borðar alltaf úr þessum dalli. Hann var ekki með neina hálsól, og engin í kring á kött.

Ég bý rétt hjá Akureyri, ef eigandinn er að lesa þetta, sendu mér þá bara PM.

Kveðja AichaLady
Some past just can not be forgotten…