Mér barst það til eyrna að eitthvað væri lítill áhugi manna að á kattarsýningunni sem til stóð að yrði haldin á næstunni. Fannst mér sérstaklea leitt að lítið væri búið að skrá af húsköttum og því væri verið að hvetja ykkur sem eigið fallega húsketti til að koma og vera með !!

Það væri mikil synd að húskattarflokkurinn dytti uppfyrir svo því vildi ég vekja athygli á þessu ef einhver ykkar ættu tök á því að koma og vera með !!!! - Það eru fjölbreyttustu kettirnir í þessum flokki og því alltaf mjög spennandi keppni milli húskatta !!! Kíkið við á www.kynjakettir.is og finnið verskrá og skráningarblöð ásamt öllum nánari upplýsingum !!!
Skógarkettir.tk