Ég var að lenda í því atviki að þegar ég var að hleypa kisunni minni inn um kvöldmatarleitið þá var hún öll svört í framan.

Ég tek hana inn og fer og byrja að þrífa þetta svarta, en það fer ekki af, ég þefa af þessu og þetta lyktar eins og túss.
Ég skoða þetta nánar og það er búið að teikna typpi inní bæði eyrun á henni !!

OG búið að tússa hana alla svarta í framan !!

Eins gott að augun á henni hafa sloppið..

Síðan fór ég að skoða hana nánar og það blæddi úr þófanum á henni, hann var allur sundurskorin, ég ætla rétt að vona að þessir krakkar hafi ekki skorði hana, held samt að hún hafi skorið sig þegár hún var að berjast um..

Ég spyr bara, hvað er í gangi ? Þetta eru engir 5 ára óvitar sem eru að þessu..

Hér er mynd af henni eftir þetta.. hausin á henni á að vera hvítur !

http://www.ramling.com/e107_plugins/kig_menu/index.php?view=image&imageId=89