Ég var að fá kettling í fyrra dag og hún er allgjör DÚLLA!! Hún heitir Kittý Kittý Bang Bang en við köllum hana bara Kittý.
Þegar við fórum og náðum í hana ætlaði ég ekki að trúa því að við vorum að fá kettling á heimilið! Mér hlakkar nú eiginlega til að sjá hvernig hinn kötturinn okkar, sem er fress, bregst við þessu. En þar sem ég er núna er einn hamstur sem heitir Plútó og hann er rosalega forvitinn yfir þessum nýja gesti. Í stað þess að hlaupa í felur(eins og hann ætti nú að vera búinn að læra) hleypur hann forvitinn að henni og skoðar. En þó að ég er mjög ánægð yfir að við erum búin að fá nýjan kettling á ég aldrei eftir að gleyma Brandi:( *sniff* *sniff*