Hæhæ,

Þannig er mál með vexti að það er kominn nýr kisi á heimilið, hann er 2 mánaða, blágrár einhvern veginn á litinn, kafloðinn og með blá augu, obboslega sætur högni.

Ég og kærastan eigum samt í erfiðleikum með að finna nafn á hann, þegar við fengum læðuna vorum við heillengi að komast að niðurstöðu að nafni því hugmyndirnar voru svo margar. Núna hins vegar erum við í mestu vandræðum því okkur dettur ekkert í hug.

Ef einhver lumar á sniðugu nafni á þennann litla sæta hárbolta þá endilega svarið hérna :D

með fyrirfram þökk,