HÆHÆ.

Mig vantar smá upplýsingar..
Ég er með tvær kisu stelpur Tinnu 4 ára og Elísubetu 1 1/2 árs.
Málið er að við erum að fara flytja úr Breiðholti í Vesturbæinn.Ég er svo hrædd um að þær þoli ekki flutninginn og hverfi bara .Elísabet er heimakær en Tinna er smá flakkari.
Hef ég ástæðu til að óttast,ef svo er hvað get ég gert?
Ég elska kisurnar mínar og vill ekki missa þær:)

takk.