Púki kisukrútt er grár með hvítar loppur og græn augu hann er voðalega sætur og er skemmtilegasti köttur í heimi…Hann er rosalega fjörugur og kemur úr Kattholti, hann var voða mjór fyrst en svo fitnaði og fitnaði hann eftir að hann kom á heimilið! Púki á mjög margar mýs sem hann leikur sér alltaf með. Hann er mjög mikið úti en vill alls ekki vera úti í rigningu.. Púki týndist 1 sinni og við vorum búin að leita og leita að honum en þá var hann búinn að fara inn um glugga í skóla sem var rétt hjá og það höfðu menn verið að lakka gólfið og hann labbaði um skólann og þá fór þjófavarnarkerfið í gang og löggan kom og alles, svo sá lögreglan kattarspor í lakkinu og þá settu þeir mat og vatn handa honum en náðu honum aldrei.. Svo gengum við framhjá skólanum og þá var Púki í glugganum þar alveg að klikkast yfir að vera lokaður inni…greyið…