Eflaust hafa mörg ykkar skoðað nýju Kattholt síðuna. Það er svo sorglegt að sjá hvað það eru margar kisur sem vantar heimili. Kattholt á erfitt með að borga undir allar þessar litlu elskur og þau þurfa okkar hjálp. Með að gerast félagi í Kattavinafélagi íslands borgar maður 2500 kall á ári (sem er alls ekki mikið) til Kattholts og styrkir þar af leiðandi reksturinn. Einnig er hægt að leggja beint inn á reikning þeirra en hann er Landsbanki Íslands 0113-26-000767, kt. 550378-0199. Ég ætla að skrá mig í Kattavinafélagið strax og ég eignast pening, það er engin spurning. Ég hvet ykkur öll til að leggja þeim lið… :)