Sæl öll.

Þetta var hræðilegur dagur og ég mun líka alltaf muna eftir honum.ég og vinkona mín vorum að labba heim af fótboltaleik leiðar af því að okkar lið tapaði en svo kom einn lítill ofboðslega sætur kettlingu labbandi að koour og byrjaði að nudda sér í okkur.Við klöppuðum honum og klóruðum honum og urðum voðalega góðar við hann og honum fannst þetta rosalega þægilegt.En það var kominn tíma að ég og vinkona mín þurftum að fara heim.Við byrjuðum að labba en kettlingurinn vildi ekki fara frá okkur og elti okkur bara.Við tókum hann upp og fórum með hann til baka.Hann ákvað bara að fara fyrir framan okkur ogfór leiðina sem við fórum við reyndum að ná honum en það var of seint.Það komu þrír brunandi unglingar á bílum og keyrðu á vesalings kettlinginn.Við fórum að hágráta þarna og horfðum á kettlinginn ráðalausar við vorum þarna í hálftíma að leita af einhverju fólki sem gar hjálpað okkur.En svo loksins stoppaði einn bíll og færði kettlinginn af götunni.Það var hringt á lögregluna til þess að koma og taka köttinn.ég og vinkona mín störðum á kettlinginn með tár í augunum.Hann lá þarna blóðugur.Nú veit ég ekki hvort þetta var mér að kenna eða ekki.ég er að vona að hann hafi kynnst sem flestum upp í himnaríki.
Kveðja rosastelpa.