Ég er að skrifa þetta af því að ég var að enda við að sjá köttinn minn slást við annan kött.
Ég heyrði eitthvað mjálm og fór út að gá hvort þetta væri kötturinn minn en sá ekkert. Svo kom annar köttur hlaupandi þegar ég prófaði að kalla á kisa. Allt í einu stökk kötturinn minn úr runna og réðst á hinn köttinn en hélt sig síðan í smá fjarlægð. ég sá að hvorugur ætlaði að gefast upp svo ég hræddi hinn köttunn burt og fór inn með minn. Hann varð auðvitað mjög fúll og vildi komast aftur út en ég vildi ekki að hann færi aftur að slást svo núna er ég með hann í fanginu.
Er eðlilegt að geldur köttur fari að slást um yfirráðasvæði og passa vel að enginn annar köttur fari inn á það? Eða að merkja sér staði (sá hann einu sinni gera það)??

P.s myndin er af Gotta(uppi) og kettinum (niðri)