Ég sendi inn grein fyrir að löngu að læðan mín Títla væri kettlingafull. Það var vitlaust hjá mér en nokkrum mánuðum seinna varð hún svo kettlingafull!
Þeir eru fjórir og við systkinin fjögur. Allir eru reyndar eins og pabbinn sem er svartur og hvítur en Títla er grá og hvít. Ég valdi mér einn bara svona í gríni og segja alltaf að ég eigi hann. Hann er alveg ofsalega sætur. Mest ,,seinþroska" því hann er eini sem er ekki búinn að opna augun!
Ég var í sumarbústað meðan hún gaut svo ég missti alveg að fæðingunni en bróðir minn sem fór ekki með sagði að hún gaut í rúmfataskúffunni í systur minnar herbergi. Annars hef ég ekkert meir til að segja en langaði bara til að segja ykkur frá kettlingunum mínum sem er ALGJÖRAR dúllur.
-Anna Potte
…Heyrru núhh kveð ég bra úr stundinni okkar.. bæjj;*