Hæ hæ Hún Emelía mín er með kettlinga en er ekki alveg örugg hvenær þeir fæðast en býst við mjög fljótlega. Hún er innikisa og varð kettlingafull eftir Kela hinn inniköttinn minn. Hún er blanda af norskum skógarketti og hann að ég held persa. Þau hafa eignast kettlinga einu sinni áður og voru þeir virkilega fallegir og alveg ótrúlega góðir. Þær manneskjur sem fengu þá kettlinga eru alveg himinlifandi með sínar dúllur. Það sem ég er að hugsa er hvort ég eigi að setja hana á pilluna eða taka hana úr sambandi. Hann er orðinn of gamall til að láta gelda en vitið þið hvort læður verði nokkurn tíma of gamlar.