bræður kærasta míns eru mikið fyrir það að stríða kettinum á heimilinu. Maður vorkennir kettinum ofboðslega, en stundum er fyndið hvað strákunum dettur í hug að gera. Mörgum finnst freistandi að stríða litlu saklausu dýrunum án þess að meina illt með því. En einn bræðra hans setti td teygju lauslega utan um afturfæturna á kettinum og lét hann labba þannig og hinn bróðirinn renndi kettinum eftir gólfinu(einsog hann væri að skúra) en kötturinn naut þess bara…var alveg kyrr og rólegur. Þetta var auðvitað ekkert illa meint. Þetta eru gaurar og þeim þykir mjög vænt um köttinn þrátt fyrir allt svona :) en maður vorkennir kettinum oft :) mikið