Ég ætla að skrifa grein um þessa ágætu dýralækningastofu.

Ég á tvær kisur sem eru báðar geldar og var sú aðgerð gerð hjá Dagfinni Dýralækni. Á þeirri stofu var hugsað mjög vel um kisurnar mínar og ég var rosalega ánægð með þjónustuna.

Eigandi þessarar stofu er reyndar kvenkyns og heitir í rauninni ekki Dagfinnur:) Þessi ágæta stofa er staðsett í miðbæ Reykjavíkur eða nánar tiltekið á Skólavörðustíg 35. Þetta er frábær stofa með tveim fínum dýralæknum!!

Ég mæli með þessari stofu fyrir þá sem vilja láta hugsa extra vel um dýrin sín.