Nýji kisinn minn, hann Valdi sem ég fékk hérna fyrir um viku síðan, er núna upp á spítala. Hann fékk þvagteppu. Ég vissi bara ekkert hvað var að vegna þess að ég hafði alltaf ákveðið að lesa greinina um hana seinna! Dýralæknirinn sagði að það væri mikið af blóði, hvítum blóðkornum og próteini í þvaginu, vegna þess að þetta er komið í nýrun á honum. Hann var alls ekki búinn að vera svona lengi 1-2 daga en það er ekki víst að hann lifi af…