Ég sá nýlega þátt á Animal planet um það að fullt af fólki í asíu (Kína og víetnam td.) er að drepa ketti og hunda til þess að búa til pelsa úr feldinum á þeim. Og það sem var ennþá verra var hvernig þeir drápu þá til að skemma ekki feldinn, það var fullt af hræddum kisum í litlu trébúri, síðan náðu þeir einni kisu í einu með snöru og hertu á, svo voru þeir festir upp við rimlana og beðið eftir að þeir dæju, stundum tók það meira að segja nokkrar mínútur fyrir þá að deija og þeir börðust um og gátu ekkert gert. Ég sver að ég öskraði og fór að hágrenja. það eru nokkrir dagar síðan ég sá þetta og er ennþá í sjokki. síðan voru þeir að selja hunda- og kattapelsa til margra virðulegra fyrirtækja. þannig hugsið ykkur. næst þegar þið sjáið gamla ógeðslega snobbkellingu í pels gæti það verið kettlingar eða litlir sætir hvolpar. PELS ER MORÐ.