Ég á 3 ketti 1 siams og 2 oriental engin þeirra gengur úti og er siamsinn letidýr. En einn af mínum oriental köttum fær ekkert betra en kjúkkling (auðvitað bara þetta kvíta ekki húðina) ég var að bæla hvort það sé ekki örugglega í lagi að gefa honum það því að ég las það í einhverju blaði að kjúklingur fari illa í dýr. Ef það er kjúlli á borðum heima hjá mér er hann alltaf fyrir framan borðið mjálmandi. En ef þú þarft að gefa kisunni þinni lyf sem þú hellir yfir matinn þá mæli ég með því að þú fáir harðfiskmjöl einhverstaðar og strjáir því yfir matinn. Harðfiskur er nefnilega það besta sem hinir 2 kettirnir mínir fá.

Síðan halda þeir allir að þeir séu hundar og vilja ekki sjá kattahús bara rúmið mitt og þessvegna sofa þeir alltaf við fæturnar mína og ráðast á tærnar á morgnanna.

Síðan var það einn köttur af mínum sem kom ekki á sama tíma inní fjölskylduna og hinir það er annar oriental kötturinn minn. Hann var svi hræddur við hina (allt í lagi í dag)að hann svaf alltaf undir sænginn minni.

Fyrsti kötturinn minn sem er siamskötturinn barðist við kattafár þegar hann var kettlingur. Hann kom úr rosalega fallegu goti. En það versta var að hinir 9 kettlingarnir dóu allir. Hann var sá eini sem lifði. Pabbi vakti allar nætur nuddandi hann og gefandi honum lyf og að fykgjast með honum á endanum vann hann kattarfárið og lifði af það var léttir.

Síðan varð einn kattanna minna kynjaköttur sýningar. Hann heitir
Nátthaga Gaukur. Hann er svartur Oriental

Þannig að ég hef gengið í gegnum margt með mínum köttum og vinsamlegast svarið spurningunni minni. Takk
Kveðja vefstjorn