Þessi texti er úr bók sem ég hef verið að vinna að á íslensku wikibókum og mæli ég með lestur þessarar greinar þar. Vegna þess að á þeirri síðu eru margar skýringamyndir auk þess þar sem þar er hægt að lesa aðra kafla í bókinni. Bókinn er ekki alveg tilbúinn. En er á góðri leið með að verða það. Enn vantar í hana rúma 3 kafla þ.e.u. byggingu niflhlébarða og gaupur.

Linkur: http://is.wikibooks.org/wiki/St%C3%B3ru_Kattard%C3%BDrin

Kynning
Kettir hafa mörg afar nákvæm skynfæri og reiða sig á þau við veiðar. þeir hafa frábæra nætursjón og einkum hentuga tungu, löng veiðihár, næmt lyktarskyn og skarpa heyrn.

Veiðihárin

Veiðihár inn eru lífs nauðsýnleg fyrir ketti og hafa þeir fjöldan allan veiðihára í framan, þó aðalega á trýninu og augabrúnunum. Veiðihárinn nota þeir til að greina hve langt er í nálæga hluti. Við rætur veiðihára eru afar næmir taugaendar sem greina minnstu nálægu hreyfingu. Mikilvægustu veiðihárinn eru til hliðanna og henta best til að finna allt það sem sjóninn sér ekki.

Tungan

Tunga Katta er afar Fjölhæf. Kettir nota tunguna ekki bara til að finna bragð heldur líka til að lepja vatn og snyrta feldinn. stórir kettir hafa hrjúfa tungu vegna þess að á henni eru fullt af nöbbum sem henta vel við að ná kjötflýsum af beinum. þegar kettir lepja vatn mynda þeir dæld á tungubroddinn sem líkist skeið. Þeir lepja vatnið nokkrum sinnum og geyma það í munninum þangað til þeir eru komnir með nóg í einn sopa og kyngja svo. Tungan er einnig afar hentug greiða. Kettir nota líka hrjúfa tunguna til að kemba sér við það losna fullt af lausum hárum auk þess sem feldurinn verður sléttur og fínn. Kettir geta ekki fundið sætt bragð en greina í staðinn sérbragð af vatni. Bragðlaukar katta eru staðsettir aftast í tungunni og í gómnum.

Lyktarskyn

Kettir hafa um það bil fjótán sinnum sterkara lyktarskyn en menn. Þunn uppvafinn bein bera lykttina til lyktarskynfærana. Kettir hafa um tvöfalt fleiri lyktarskynfrumur í nefinu en menn, sem þýðirað þeir geta fundið lykt sem við vitum ekki einu sinni af. Í efrigómi katta er einnig sérstakt lífæri sem kallast jakopsen líffærið. Það gerir köttunum kleift að finna bragð af ilmefnum. Til að nota líffærið opnar kötturinn muninn og leifir tungunni að lafa aðeins svo að leiðinn sé greið að lyktarbragðskynfrumunum. Þetta sérstaka skyn færri nota kettirnir aðalega til að finna ilminn af öðrum kattardýrum.
Nei bara pæling.