Höfðingja vantar nýtt heimili Höfðingi er þriggja og hálfs árs fress sem vantar nýtt heimili vegna kattaofnæmis fjölskyldumeðlima.
Hann er voðalega rólegur og stundum leikinn. Bítur aldrei eða klórar nema þegar hann er hræddur. Hann er ósköp kelinn en kann ekki við að sér sé klappað á magann, sennilega kitlar honum bara þar.
Hann er gulur og hvítur með sennilega síams eitthverstaðar aftur í ættum því hann er háfættur og heldur grannur í andliti. En annars er hann vel alinn með dálitla bumbu. Hann er eyrnamerktur og var ormahreinsaður í Janúar.
Höfðingi er útiköttur og algerlega kassavanur.

Endilega látið vita ef ykkur langar að fá svona yndislegann kött
Það má líka senda á emailið mitt beint
það er: hjordiserna@gmail.com

kv. Hjördís