Tímaskyn Katta Kötturinn minn er búin að læra það klukkan hvað ég kem heim úr vinnunni á kvöldin. Mamma mín og bróðir, hafa bæði tekið eftir því að ca hálftíma áður en ég á að koma heim þá sést minn á mottuna inní forstofu og bíður eftir mér :) Ég er vanalega komin heim svona á milli 23:30 og 24:00 og hann er alltaf viðbúin og þá stundum er hann útí glugga að bíða eftir að sjá mig skokka uppað dyrum!
Svo verða þessi líka svakalegu fagnaðarlæti þegar ég loks kem heim.
Svo líka það að ég má ekki fara á klósettið án hans :)
Bara gott að vita að eitthverjum þykir svo vænt um mig að ég verði að koma á réttum tíma heim og svona :)