Passaðu þig hvað þú skírir köttinn þinn! Á heimasíðu Hvíta hússins eru kynntir fjölskyldumeðlimir Bush fjölskyldunnar, þar á meðal ,að sjálfsögðu, kötturinn þeirra “India”.
Nú hefur hópur indverskra þjóðernissinna mótmælt nafni kattarins og segja það móðgandi við Indland og krefjast þess að nafn hans verði fjarlægt að heimasíðu Hvíta Hússins, ekki er þess þó krafist að nafni kattarins verði breytt.
Afhenti hópurinn sendiráði Bandaríkjanna í Indlandi bréf um mál þetta sem átti að koma áleiðis til Hvíta hússins og nú er bara að bíða og sjá hvort Bush þykir nógu vænt um kisu sína til að hætta á óvild á milli Bandaríkjanna og Indlands.
Að lokum vil ég biðja ykkur um að nefna kettina ykkar ekki eftir löndum, það gæti verið móðgandi! ;)
Just ask yourself: WWCD!