Þannig er mál með vexti að ég var búin að ákveða að fá mér kettling um daginn, ég vil fá læðu. Svo fór ég að labba á íbúðirnar í stigaganginum til að fá leifi og á 1. íbúðinni kemur þvert NEI. Jæja, ég vildi náttúrulega fá að vita ástæðuna og hún var sú að fólkið sem ´bjó í íbúðinni á undan okkur var með læðu og þegar hún var breima þá var hún alltaf fyrir utan húsið og vældi það og skældi og kallaði að alla högna í hverfinu, því fylgdi sóðaskapur og hélt vöku fyrir öllum í húsinu. OK, skiljanlegt. Ég fór náttúrulega strax að hugsa: Ef ég fæ mér fress, mig langar ekki í fress. Ef ég held læðunni inni á meðan hún er læða, það er ekkert víst að það takist. En nú kemur ljósið: Gæti sett hana á pilluna, þá verður hún ekki kettlingafull, en fer hún samt að breima? SVAR ÓSKAST!:) Og ef svo, er til einhver leið til að komast hjá breiminu?
katkat
kv. katakat