Kelirófan mín Kötturinn minn er farin að taka uppá alveg æðislegum hlut. Í hvert skifti sem ég erað fara að sofa, þá treður hann sér alveg upp við mig eða leggst ofaná mig og bíður eftir að ég setji sæng yfir hann og svona. Svo set ég sæng á hann og erað klappa honum, þá gerir hann það sem hann hefur alltaf gert, sleikt mig í framan og svona nartað í hökuna á mér og bitið, en bara af góðvild.. svona eins og hann sé að leita sér af spena.. en núna er hann farin að strjúka mér í framan með loppunni, svona eins og hann sé að borga mér á móti fyrir að vera að klappa sér, það er hreint æðislegt ;)