Ég á ekki orð! ég varað horfa á fréttirnar og þar var köttur sem fanst í breiðholti og búið var að misþyrma honum hrottalega!
Það var búið að flá hann á sitthvorri hliðinni, Það var sýnd mynd af kettinum og það var ógeðslegt að sjá þetta! Sárin voru gróin svo það eins og kötturinn væri með vængi!
Einnig fundust kettlingar þarna hjá þeim líka sem ég man ekki alveg hvar þeir fundust eða hvað var búið að gera við þá!
Þetta var hreint ógeðslegt! Að eitthver geti gert litlu saklausu dýri þetta! Mig langar mest til þess að finna sökudólgin og gefa honum sömu meðferð! Svona lagað á ekki að viðgangast!
Nú skal ég gera eitthvað í málunum!!! Mikið djöfull varð ég reið!!