Trotsky the magnificent er kötturinn minn (hefur sko mjög skemmtilegan persónuleika).

Hann Trotsky má líkja nokkuð við garfield í suma staði það eina sem hann gerir á daginn að að éta og sofa og á kvöldin fer hann út (vonandi ekki til að vera syngjandi uppá einhverju hliði eins og garfield)

Hann étur nær allt mögulegt t.d. Lítill haribo nammi, táslurnar á pabba á morgnanna, stöku sinnum örlitla banana bita og kattarmat samt aldrei pussy (fyrir einhverri persónulegri ástæðu… þó hann gerði það meðan það hét en felix)

hann leikur sér aldrei nema í tveim tilfellum eitt er þegar maður er með hart plast og lætur braka í því þá verður hannn alveg vitlaus hefur stokkið niður 2 metra til að ná því einu sinni og hins vegar til að sýna litla bróðir sínum who's boss :P

Hann hefur einu sinni náð að veiða fugl á æfi sinni en tókst ekki að drepa hann en kom samt með hann inní húsið :S (það brotnuðu nokkrir vasar…)

En samt sem áður elska ég hann meira en nokkuð annað!

og sem stendur er hann alveg að deyja úr krúttleika því ég henti plastleikfanginu í þvottakörfu og hann er örlítið fastur greyið.

A.T.H. vil engar lélegar móðganir í svöronum mínum!
( That means you IceCat en ekki hafna þessari grein samt sem áður :P )